Hólmbert skaut gömlu félögunum úr keppni

Hólmbert Aron Friðjónsson þegar hann lék með Aalesund.
Hólmbert Aron Friðjónsson þegar hann lék með Aalesund. Ljósmynd/Aalesund

Hólmbert Aron Friðjónsson var hetja Lilleström er hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á fyrrverandi liðsfélögum hans í Aalesund þegar liðin mættust í 32-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í dag.

Sigurmark Hólmberts kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Lék hann fyrstu 68 mínúturnar í fremstu víglínu hjá Lilleström í dag.

Bjarni Mark Antonsson var þá í byrjunarliði Start þegar liðið vann öruggan 3:0-útisigur á Moss, einnig í 32-liða úrslitum bikarsins.

Bjarni Mark lék fyrstu 70 mínúturnar á miðjunni hjá Start.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert