Tekur sér hlé vegna hjartavandamála

Lucas Leiva í leik með Liverpool.
Lucas Leiva í leik með Liverpool. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Lucas Leiva hefur neyðst til þess að taka sér hlé frá knattspyrnuiðkun vegna óreglulegs hjartsláttar.

Lucas leikur með Gremio í heimalandinu um þessar mundir eftir að hafa leikið í Evrópu um fimmtán ára skeið, fyrst með Liverpool árin 2007 til 2017 og svo Lazio árin 2017 til 2022.

Eftir að hafa gengist undir venjubundna læknisskoðun fyrir undirbúningstímabil Gremio í aðdraganda næsta tímabils komu í ljós hjartavandamál og þarf Lucas því að taka sér hlé frá æfingum og keppni um óákveðinn tíma.

Hann mun gangast undir frekari læknisskoðanir í framhaldinu, sem munu skera úr hvenær eða hvort Lucas geti æft og spilað á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert