Orri tryggði SönderjyskE stig

Orri Steinn Óskarsson í treyju SönderjyskE.
Orri Steinn Óskarsson í treyju SönderjyskE. Ljósmynd/@SEfodbold

Orri Steinn Óskarsson tryggði SönderjyskE stig gegn Nyköbing í dönsku B-deildinni í fótbolta í dag. 

Leiknum lauk með 1:1 jafntefli á heimavelli SönderjyskE. Orri Steinn kom inná í byrjun seinni hálfleiksins þegar Nyköbing leiddi með einu marki. Ungi framherjinn nýtti hinsvegar tækifærið og jafnaði metin á 84. mínútu. 

Atli Barkarson lék allan leikinn í liði SönderjyskE sem er með 35 stig í fjórða sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert