Ásgeir í úrslit á Evrópumeistaramótinu

Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson. mbl.is/Eggert

Ásgeir Sigurgeirsson er kominn í úrslit í keppni með loftskammbyssu af 10 metra færi á Evrópumeistaramótinu í skotfimi sem nú stendur yfir í Óðinsvéum í Danmörku.

Ásgeir hafnaði í fjórða sæti af sjötíu keppendum og keppir þar með í lokaúrslitunum sem hefjast klukkan 11.15. Þar berjast átta efstu um sigurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert