KA jók forskotið

Frá leiknum í Neskaupstað í dag.
Frá leiknum í Neskaupstað í dag. Ljósmynd/Jón Guðmundsson

KA náði í dag sjö stiga forystu á toppi Mizuno-deildar karla í blaki með því að vinna öruggan sigur á Þrótti austur í Neskaupstað, 3:0.

KA vann fyrstu hrinu 25:18, aðra hrinu 25:15 og þá þriðju eftir framlengingu, 27:25. KA er með 25 stig toppi deildarinnar, HK er með 18 stig, Stjarnan 15, Þróttur N. 8 og Afturelding 6 stig.

Quentin Moore skoraði 21 stig fyrir KA og Mason Casner 12. Miguel Mateo var stigahæstur hjá Þrótti með 23 stig og Atli Fannar Pétursson skoraði 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert