Norðmenn og Þjóðverjar sigursælastir

Norðmaðurinn Håvard Holmefjord vann gullverðlaun í 500 metra skautahlaupi í …
Norðmaðurinn Håvard Holmefjord vann gullverðlaun í 500 metra skautahlaupi í gær. AFP

Norðmenn og Þjóðverjar hafa verið sigursælastir allra þjóða á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kór­eu en ellefti keppnisdagurinn á leikunum var í dag.

Norðmenn og Þjóðverjar hafa unnið til 11 gullverðlauna og Kanadamenn koma næstir með 8 gullverðlaun.

Norðmenn hafa unnið til flestra verðlauna á leikunum en þeir hafa fengið samtals 29 verðlaunapeninga. Þjóðverjar koma næstir með 23 og Kanadamenn 19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert