KA einum sigri frá meistaratitlinum

Frá leik HK og KA í kvöld. KA þarf einn …
Frá leik HK og KA í kvöld. KA þarf einn sigur til viðbótar. mbl.is/Valgarður Gíslason

KA er einum sigri frá því að verða Íslandsmeistari karla í blaki eftir 3:1-sigur á HK í öðrum úrslitaleik liðanna í Fagralundi í kvöld. KA er nú með 2:0-forystu í einvíginu.

KA byrjaði betur og vann fyrstu hrinuna 25:21, en HK svaraði með 25:23-sigri í 2. hrinu og jafnaði leikinn. KA vann hins vegar næstu tvær hrinur, 25:21 og 25:22, og leikinn í leiðinni. 

Quentin Moore átti stórleik fyrir KA og skoraði 27 stig, Mason Casner gerði 11 og Alexander Arnar Þórisson skoraði 10 stig. Hjá HK var Andreas Hilmir Halldórsson með 14 stig og Gary House 12. 

Liðin mætast í þriðja sinn á Akureyri næstkomandi þriðjudag og getur KA þá orðið Íslandsmeistari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert