ÍR-ingurinn Thelma Lind Kristjánsdóttir bætti í kvöld 36 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti er hún kastaði 54,69 metra á Kastmóti UMSB í Borgarnesi.
Íslandsmetið var áður 53,86 metrar og átti Guðrún Ingólfsdóttir það frá árinu 1982.
Thelma er nýkrýndur Íslandsmeistari í kringlukasti og hafði áður kastað lengst 52,80 metra og bætti hún þar með sitt eigið persónulega met um tæpa tvo metra.