Hámenntaður en einbeitir sér að hlaupunum

Hlynur Andrésson á fullri ferð.
Hlynur Andrésson á fullri ferð. mbl.is/Árni Sæberg

Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson stóð á krossgötum í vetur sem hlaupari. Hlynur stóð sig virkilega vel á síðasta ári og setti fjögur Íslandsmet. Á meðan hann keppti í háskólaíþróttunum í Bandaríkjunum náði hann metum af ekki ómerkari afreksmanni en Kára Steini Karlssyni sem varð til þess að íþróttaáhugafólk fór að gefa Hlyni meiri gaum. Hann hefur lokið námi í Bandaríkjunum og tók þá ákvörðun að hella sér út í hlaupin af enn meiri krafti á meðan efni og aðstæður leyfa.

„Ég kláraði meistaranám í líffræði núna í byrjun ágúst og þurfti þá að ákveða hvort ég myndi fara beint í doktorsnám og gera hlaupin að áhugamáli, eða gefa bara allt í hlaupin og reyna að komast á atvinnumannsstigið. Síðasta sumar þurfti ég að fórna atlögu að lágmarki fyrir EM í Berlín til að klára námið í Bandaríkjunum og það þótti mér mjög leiðinlegt. Í haust fannst mér ég eiga skilið að taka mér frí frá námi og reyna að ná sem mestu út úr mér sem hlaupara. Ég hef verið í sambandi við Honore Hoedt, sem þjálfaði Anítu Hinriksdóttur í Hollandi, frá því við hittumst á EM í Belgrað 2017. Hann hafði mikinn áhuga á að þjálfa mig og hafði trú á því að ég hefði það sem þyrfti til að komast á hæsta stigið í íþróttinni.

Auðvitað er svolítið erfitt fjárhagslega að elta svona draum, en ég hef verið fremur heppinn með styrki hingað til og vonast eftir að geta unnið aðeins samhliða æfingum. Ísfélagið, Vinnslustöðin, Eins og fætur toga og ÍR hafa stutt við bakið á mér og ég þakka fyrir það. Til þess að geta keppt við atvinnumenn í hæsta gæðaflokki er eiginlega ekki hægt að vinna fulla vinnu. Maður verður eiginilega að eyða öllum sínum tíma í æfingarnar og jafna sig þess á milli. Þessari ákvörðun hef ég staðið frammi fyrir eftir að ég lauk námi. Hvort ég vilji í raun fórna svo miklu fyrir íþróttirnar sem er ekki sjálfgefið. Ég vona að þetta verði þess virði.“

Ítarlegt viðtal við Hlyn má finna í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert