Næst besti tími íslenskrar konu

Elín Edda Sigurðardóttir.
Elín Edda Sigurðardóttir. Ljósmynd/ÍR

Elín Edda Sigurðardóttir keppti í gær í sínu fyrsta maraþoni í Hamborgarmaraþoninu í Þýskalandi. Hún hljóp á tímanum 2:49,00 sem er næst besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi.

Aðeins Martha Ernstdóttir hefur hlaupið hraðar og gerði hún það í Berlín árið 1999 þegar hún hljóp á 2:35,15. Elín Edda var því að hlaupa á besta tíma íslenskrar konu í maraþoni í 20 ár.

Elín varð í 29. sæti kvenna í hlaupinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert