Fjórða Íslandsmetið í fjórum tilraunum

Anton Sveinn McKee er í hörkuformi.
Anton Sveinn McKee er í hörkuformi. Ljósmynd/Simone Costrovillari

Anton Sveinn McKee bætti við sínu fjórða Íslandsmeti á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Glasgow í dag. Anton synti 200 metra bringusund á 2:03,67 mínútum og bætti eigið Íslandsmet um 0,76 sekúndur.

Anton varð annar í sínum riðli og með fjórða besta tíma allra. Hann er því kominn í úrslit, sem fara fram klukkan 17:15. 

Anton hafnaði í sjöunda sæti í 50 metra bringusundi í gær og setti hann Íslandsmet í undanrásum, undanúrslitum og í úrslitum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert