SA vann örugglega í Reykjavík

SA vann góðan sigur á Reykjavík í kvöld.
SA vann góðan sigur á Reykjavík í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skautafélag Akureyrar vann 5:2-sigur á Reykjavík er liðin mættust í Skautahöll Reykjavíkur í Hertz-deild kvenna í íshokkí í kvöld. Akureyri er nú með sjö vinninga í viðureignum liðanna í vetur en Reykjavík hefur unnið tvo leiki.

Akureyri komst í tveggja marka forystu í fyrsta leikhluta með mörkum frá Hilmu Bergsdóttur og Teresu Snorradóttur. Reykjavík minnkaði muninn rétt fyrir leikhlé með marki frá Brynhildi Kjartansdóttur. Sarah Smiley endurheimti hins vegar tveggja marka forystu gestanna í öðrum leikhluta með þriðja marki Akureyrar.

Steinunn Sigurgeirsdóttir tókst að minnka aftur muninn fyrir heimakonur áður en mörk frá Berglindi Leifsdóttur og Smiley innsigluðu stórsigur Akureyringa sem eru með 22 stig eftir níu umferðir. Liðin mætast alls tíu sinnum í deildarkeppninni og eiga því eftir að mætast einu sinni fyrir norðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert