Fyrsti Íslendingurinn á heimsmeistaramótið

Aldís Kara Bergsdóttir.
Aldís Kara Bergsdóttir. Ljósmynd/Skautasamband Íslands

Aldís Kara Bergsdóttir varð í gær fyrst íslenskra einstaklingsskautara til að tryggja sér tæknistig Alþjóðaskautasambandsins. Stigin veita henni keppnisleyfi á heimsmeistaramóti unglinga.

Tæknistigin eru helmingur einkunnar hvers prógramms og fer eftir erfiðleikastigum elementanna sem skautarinn framkvæmir. Í stuttu prógrammi þarf að ná lágmark 23 stigum og í frjálsa prógramminu 38 stigum. Ekki þarf að ná stigunum í báðum prógrömmunum á sama móti en mótin þurfa að vera á lista Alþjóðasambandsins til þess að stigin gildi. Áður hefur einungis íslenskt lið í samhæfðum skautadansi farið á heimsmeistaramót, en það var árin 2002 og 2003.

Aldís Kara náði tæknistigum í stutta prógramminu á Halloween Cup í október sl. og svo aftur á Reykjavíkurleikunum fyrir rétt tveimur vikum. Norðurlandamótið var síðasti möguleikinn á að ná stigunum fyrir heimsmeistaramótið.

Aldís Kara fékk 43,34 tæknistig í frjálsa prógraminu sem er heilum 5,34 stigum yfir lágmarkinu. Heimsmeistaramótið fer fram í Tallinn í Eistlandi 2.-8. mars næstkomandi. 

Þessi áfangi er ekki sá eini sem Aldís náði í dag. Með frammistöðunni setti hún einnig stigamet Íslendings í junior (unglinga) keppnisflokki á Norðurlandamótinu er hún fékk 115,39 stig samanlagt, sem er bæting upp á 11,87 stig. Það met átti hún sjálf og setti það í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert