Serena Williams dregur sig úr keppni

Serena Williams.
Serena Williams. AFP

Serena Williams hefur dregið sig úr keppni á Opna franska meistaramótinu í tennis vegna meiðsla. 

Williams glímir við meiðsli í hásin og sagðist á blaðamannafundi þurfa að taka það rólega næstu fjórar til sex vikurnar. 

Serena Williams er 39 ára gömul og hefur þrívegis sigrað á Opna franska mótinu sem er eitt risamótanna fimm í tennisíþróttinni. Hún er sú næstsigursælasta frá upphafi í einliðaleik á risamótunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert