Langbesta kast íslenskrar konu

Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti Ísladsmetið í kúluvarpi innanhúss um 76 …
Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti Ísladsmetið í kúluvarpi innanhúss um 76 sentímetra á dögunum. Ljósmynd/FRÍ

Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR náði langbesta árangri íslenskrar konu í kúluvarpi frá upphafi á sunnudaginn þegar hún vann yfirburðasigur í greininni á háskólamóti innanhúss í Birmingham í Alabama-ríki í Bandaríkjunum.

Erna kastaði kúlunni 16,95 metra, rúmum tveimur metrum lengra en næsti keppandi, og bætti eigið Íslandsmet innanhúss um hvorki meira en 76 sentimetra. Fyrra metið sem hún setti í Houston í Texas í janúar 2020 var 16,19 metrar.

Þá er kast Ernu 42 sentimetrum lengra en Íslandsmetið utanhúss í greininni en það setti Ásdís Hjálmsdóttir haustið 2019 þegar hún kastaði 16,53 metra í Gautaborg.

Erna er aðeins tvítug að aldri og hennar besti árangur utanhúss er 16,13 metrar en því kasti náði hún í Houston fyrir tæpum tveimur árum og setti þá stúlknamet, U19 ára, í greininni. 

Greinina má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert