Tveir Íslendingar komust áfram á HM

Albert Jónsson hafnaði í fjórða sæti í undankeppninni.
Albert Jónsson hafnaði í fjórða sæti í undankeppninni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þrír Íslendingar hófu leik á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum sem fram fer í Oberstdorf í Þýskalandi sem hófst í dag.

Gígja Björnsdóttir hafnaði í 5. sæti í undankeppni í 5 km skíðagöngu kvenna og komst áfram í aðalkeppnina sem fer fram 2. mars.

Þá hafnaði Albert Jónsson í 4. sæti í 10 km skíðagöngu karla en Dagur Benediktsson endaði í 16. sæti og komst ekki áfram.

Aðalkeppnin fer fram 3. mars en Snorri Einarsson hafði náð lágmörkum fyrir hana og þurfti því ekki að taka þátt í undankeppninni.

Á morgun fer fram sprettganga þar sem þrír íslenskir keppendur taka þátt. Dagur Benediktsson, Isak Stianson Pedersen og Gígja Björnsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert