Næstbesti árangur Guðlaugar

Guðlaug Edda Hannesdóttir náði sínum næstbesta árangri í dag.
Guðlaug Edda Hannesdóttir náði sínum næstbesta árangri í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Guðlaug Edda Hannesdóttir keppti í dag í heimsbikarnum  í þríþraut í Arzachena á Ítalíu. Um var að ræða sprettþraut (750m sjósund, 20km hjól og 5km hlaup).

Alls voru 55 þríþrautarkonur á ráslínunni og fyrirfram var Guðlaug Edda númer 47 eftir styrkleika. Guðlaug Edda synti mjög vel og kom með fyrstu keppendum úr sjónum.

Í hjólinu myndaðist stór hópur fremst sem taldi 23 keppendur og nokkrar árásir voru gerðar en Guðlaug Edda hjólaði mjög skynsamlega og hélt sér í hópnum.

Hlaupið gekk síðan mjög vel og hún endaði í 16. sæti, 65 sekúndum á eftir Söndru Dodet frá Frakklandi sem vann á tímanum 60 mínútur og 31 sekúnda. Julie Derron frá Sviss varð í 2. sæti og Luisa Baptista frá Brasilíu í 3. sæti. Þetta er næstbesti árangur Guðlaugar Eddu í heimsbikarnum og keppnistímabilið hefur byrjað mjög vel hjá henni eftir erfið meiðsli á síðasta ári.

Stigasöfnunartímabilið fyrir Ólympíuleikana í Frakklandi 2024 hófst í gær og heimsbikarinn í dag var því fyrsta mótið sem gefur stig fyrir úrtakslistann og árangurinn í dag tryggir henni góða stöðu á þeim lista.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert