Tíu ára Íslendingur skrifaði undir á Spáni

Aron Dagur Júlíusson við keppni í motocross.
Aron Dagur Júlíusson við keppni í motocross. Ljósmynd/Aðsend

Akstursíþróttamaðurinn Aron Dagur Júlíusson skrifaði á dögunum undir samning við motocross-liðið DDR Racing Team á Spáni. Aron Dagur er einungis tíu ára gamall.

Þar með er hann yngsti Íslendingurinn sem skrifar undir samning við erlent motocross-lið

Aron Dagur hefur æft motocross af kappi síðan hann fékk fyrsta krossarann sinn einungis þriggja ára gamall.

Undanfarin ár hefur Aron Dagur keppt á Íslandi og unnið til verðlauna auk þess að keppa á Spáni í lok síðasta árs.

Í tilkynningu kemur fram að markmiðin í ár séu stór fyrir íþróttamanninn unga.

Aron Dagur mun til að mynda taka þátt á Andalúsíu-meistaramótaröðinni á Spáni. Fyrsta mótið í mótaröðinni fer fram næstkomandi sunnudag, 11. febrúar.

Þar að auki stefnir Aron Dagur á að keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga sem fer fram í Belgíu í september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert