Ólafía gæti keppt á Ólympíuleikunum

Ólafía á Indy Women-mót­inu
Ólafía á Indy Women-mót­inu AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir tók stórt stökk á heimslistanum í golfi sem var uppfærður í dag. Hún er í 197. sæti listans og hefur enginn íslenskur kylfingur verið svo ofarlega. Ólafía fer upp um 103 sæti frá því að listinn var uppfærður í síðustu viku. Hún hefur farið upp um 507 sæti á einu ári. 

Ólafía hafnaði í 4. sæti á Indy Women-mót­inu á LPGA-mótaröðinni um helgina og er það hennar besti árangur til þessa í mótaröðinni sem er sú sterkasta í heimi. Með árangrinum er ljóst að Ólafía á góða möguleika á að vera á meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum í Tókýó árið 2020. 

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á leikunum í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn. Hún var í 446. sæti þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

Miðað við stöðuna hjá Ólafíu Þórunni núna þá væri hún í hópi þeirra sem kæmust inn á leikana árið 2020. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert