Ólafía Þórunn Kristinsdóttur komst gegnum niðurskurðinn á Kia Classic-mótinu í golfi eftir að hún lék á 71 höggi í dag, eða einu höggi undir pari á öðrum hring sínum. Hún lék á 73 höggum í nótt og er hún samanlagt á parinu. Það nægði henni að fara í gegnum niðurskurðinn, en tæpara mátti það ekki standa.
Hringurinn hjá Ólafíu var mjög stöðugur, en hún fékk tvo fugla, einn skolla og 15 pör á meðan hringurinn í gær var ansi skrautlegur. Þá fékk hún einn örn, einn skramba og fullt af fuglum og skollum.
Ólafía í Kaliforníu 2. hringur | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 20:15 Textalýsing 9 - PAR Enn eitt parið og Ólafía er svo gott sem búin að tryggja sér áframhaldandi keppnisrétt á þessu móti. Staðan: Á pari 68.-88. sæti. | |||
Augnablik — sæki gögn... |