Ólafía Þórunn fer af stað í kvöld

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, fer í kvöld af stað á fyrsta hring á LOTTE-meistaramótinu í golfi sem er hluti af LPGA-mótaröðinni og fer mótið fram á Havaí.

Ólafía á rástíma á fyrsta hring klukkan 12.28 að staðartíma, eða 22.28 að íslenskum tíma. Með henni í rás­hópi eru Mina Harigae frá Banda­ríkj­un­um og Ju­lieta Gran­ada frá Parag­væ.

Um er að ræða sjötta mót Ólafíu á LPGA-mótaröðinni á þessu tímabili. Hún keppti á þessu móti í fyrra og komst þá ekki í gegnum niðurskurðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert