Heppnin með Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/golf.is

Birgir Leifur Hafþórsson komst inn á Opna spænska meistaramótið sem hófst í morgun í Madrid á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni sem er sterkasta mótaröð atvinnukylfinga í Evrópu.

Birgir Leifur var fyrsti maður á biðlista fyrir mótið. Hann fór því til Madrid án þess að vera með tryggt sæti í mótinu. Birgir var mættur áður en fyrstu keppendur dagsins fóru af stað – og beið hann eftir því að einhver myndi forfallast. Það varð raunin og fer Birgir Leifur af stað kl. 12:25 að íslenskum tíma.

Hér er hægt að fylgjast með gangi mála

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert