Henning sigraði í bráðabana

Rúnar, Henning og Kristján Þór.
Rúnar, Henning og Kristján Þór. Ljósmynd/GSÍ

Henning Darri Þórðarson úr GK bar sigur úr býtum í KPMG-Hvaleyrarbikarnum í golfi eftir bráðabana gegn Kristjáni Þór Einarssyni úr GM.

Henning og Kristján voru jafnir eftir þriðja og síðasta hringinn í dag, báðir á fjórum höggum alls undir pari og þurfti því að grípa til bráðabana um sigurinn á 18. holu. Þar hafði Henning betur strax og vann því mótið.

Rúnar Arnórsson úr GK var efstur eftir annan hringinn í gær en hann fékk skolla á 18. og síðustu holunni í dag og lauk því keppni á þremur höggum undir pari eða einu frá þeim Henning og Kristjáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert