Guðrún Brá í eldlínunni í Marokkó

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili hefur leik á morgun á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET-Evrópumótaröðina í golfi.

Mótið fer fram á PalmGolf Marrakesh Palmeraie í Marokkó í Norður-Afríku. Alls fara þrjú mót fram á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET-Evrópumótaröðina.

Guðrún Brá tekur þátt á fyrsta mótinu í Marokkó 1. - 4. nóvember. Einnig verður leikið 7. – 10. nóvember og einnig dagana 7. - 10. desember. Lokaúrtökumótið fer síðan fram 16.-20. desember í Marokkó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert