Ólafía Þórunn á tveimur yfir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur lokið fyrsta hring á Thornberry Creek Classic-mótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi, þeirri sterkustu í heimi, en leikið er í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum.

Ólafía fékk fjóra skolla og tvo fugla á hringnum, spilaði á 74 höggum og kom því í hús á tveimur höggum yfir pari vallarins. Hún var jöfn fleiri kylfingum í 128. sæti þegar hún kláraði hringinn, en enn eiga fjölmargir kylfingar eftir að ljúka leik í dag. Alls eru 140 kylfingar skráðir til leiks.

Af þeim sem hafa lokið leik í dag hefur Yu Liu frá Kína spilað best, eða á 10 höggum undir pari. Skorið verður niður eftir tvo hringi á mótinu á morgun og þeir sem komast áfram leika þriðja og fjórða hring um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert