Deila efsta sætinu á lokamótinu

Brooks Koepka spilaði frábært golf á Tour Championship-mótinu í golfi …
Brooks Koepka spilaði frábært golf á Tour Championship-mótinu í golfi í gær. AFP

Bandaríkjamennirnir Xander Schauffele, Brooks Koepka og Justin Thomas eru efstir og jafnir eftir fyrsta hring á Tour Championship-mótinu í golfi.

Um er að ræða lokamót PGA-mótaraðarinnar í ár, en fyrirkomulagið er með því móti að staða kylfinga á stigalistanum getur gefið forgjöf á mótinu.

Justin Thomas byrjaði til að mynda á tíu höggum undir pari en lék fyrsta hring á pari í gær og heldur því þeirri stöðu. Schauffele byrjaði hins vegar á fjórum undir pari og lék því fyrsta hringinn sex höggum betur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert