Telja að Tiger hafi sofnað undir stýri

Tiger Woods lenti í alvarlegu bílslysi um síðustu helgi.
Tiger Woods lenti í alvarlegu bílslysi um síðustu helgi. AFP

Talið er að Tiger Woods, einn sigursælasti kylfingur allra tíma, hafi sofnað undir stýri með þeim afleiðingum að bíll hans fór út af veginum í alvarlegu bílslysi í Kaliforníu í Bandaríkjunum í síðustu viku.

Það er USA Today sem greinir frá þessu en Tiger fótbrotnaði illa á hægri fæti í slysinu og þurfti að gangast undir aðgerð vegna þessa. 

Tiger fór út af veginum í miðri beygju en engin bremsuför sáust á veginum og bendir því allt til þess að kylfingurinn hafi ekki verið með augun á veginum.

Sérfræðingar telja ummerkin á slysstað mjög dæmigerð fyrir slys þar sem ökumaðurinn sofnar undir stýri.

Tiger, sem er 49 ára gamall, er næstsigursælasti kylfingur allra tíma á eftir Sam Snead en Tiger vann sinn fyrsta risatitill árið 1996.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert