Þrjár íslenskar á einu sterkasta mótinu

Ragnhildur Kristinsdóttir keppir á mótinu.
Ragnhildur Kristinsdóttir keppir á mótinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Opna áhugamannamótið í kvennaflokki í golfi fer fram dagana 7.-12. júní en mótið fer nú fram í 118. sinn og verður leikið í Kilmarnock, Skotlandi.

Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi og sigurvegarinn fær tækifæri til þess að leika á risamótum á atvinnumótaröðum.

Þrír íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda, Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Mótið er eitt sterkasta áhugamannamótið í kvennaflokki sem fram fer árlega en keppendur eru alls 144.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur með höggleiksfyrirkomulagi og 64 efstu kylfingarnir komast áfram í næstu umferð þar sem að holukeppni tekur við. Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur.

Sigurvegarinn fær keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylfingum, AIG mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian meistaramótinu og Augusta National meistaramótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert