Hulda Clara lék undir pari

Hulda Clara Gestsdóttir.
Hulda Clara Gestsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tók forystuna á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri. 

Konurnar luku leik í kvöld og leggst Hulda á koddann með tveggja högga forskot eftir 18 holur af 72. Lék hún á 70 höggum og var á einu höggi undir pari. 

Anna Júlía Ólafsdóttir, einnig úr GKG, lék á 72 höggum eins og Helga Signý Pálsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. 

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR er á tveimur yfir pari og Ragnhildur Kristinsdóttir á þremur yfir pari. Ragnhildur hafnaði í 2. sæti í fyrra eftir umspil og þykir líkleg til afreka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert