Guðrún lék fyrsta hring á pari

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék á pari í morgun á fyrsta degi á lokastigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Leikið er á La Manga á Spáni.

Guðrún byrjaði virkilega vel og var á fjörum höggum undir pari eftir fyrri níu holurnar. Seinni níu holurnar voru þó ekki alveg jafn góðar og lauk hún leik á pari og er því í 49. sæti eftir daginn.

Mótið er til 21. desember og hefur Guðrún því fína möguleika á að komast ofar á töfluna á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert