HK mætir KA um laust sæti í úrvalsdeildinni

Þróttarinn Sævar Ingi Eiðsson sækir að vörn HK í Laugardalshöllinni …
Þróttarinn Sævar Ingi Eiðsson sækir að vörn HK í Laugardalshöllinni í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

HK hafði betur gegn Þrótti, 30:25, í oddaleik liðanna í umspili um sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik sem fram fór í Laugardalshöllinni í kvöld og mætir KA í slagnum um að fylgja liði Akureyrar upp í deild þeirra bestu.

HK var yfir í hálfleik, 16:12, og hélt fengnum hlut í þeim síðari og vann þar með einvígið, 2:1.

Styrmir Sigurðarson skoraði 7 mörk fyrir Þrótt og Kristján Þór Karlsson 5 en hjá HK-ingum var Kristján Ottó Hjálmsson markahæstur með 10 mörk og Ingi Rafn Róbertsson kom næstur með 6 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert