Barcelona er óstöðvandi

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Barcelona

Barcelona hélt sigurgöngu sinni áfram í spænsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld en liðið burstaði Huesca 39:23.

Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk úr fimm skotum í leiknum fyrir Barcelona sem hefur unnið alla 15 leiki sína í deildinni og er með 11 stiga forskot á Bidasoa í toppsæti deildarinnar.

Stefán Darri Þórsson hafði sig ekkert í frammi þegar lið hans, Alcobendas, tapaði fyrir Valladolid, 25:24, á útivelli. Alcobendas rekur lestina í deildinni með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert