Nýliðar HK í Olís-deild karla í handknattleik hafa samið við landsliðsmann frá Georgíu. Sá heitir Giorgi Dikhaminjia og er 22 ára örvhent skytta sem getur bæði spilað fyrir utan og í hægra horninu.
Dikhaminjia hefur verið fastamaður í georgíska landsliðinu undanfarin tvö ár. Hann lék í Makedóníu á síðustu leiktíð og var valinn í úrvalslið deildarinnar í lok tímabilsins.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá nokkur mörk frá Dikhaminjia.