Sigvaldi Björn Guðjónsson og samherjar hans í Elverum eru komnir í undanúrslit norsku bikarkeppninnar í handbolta eftir 29:25-sigur á Kristiansand á heimavelli í dag.
Sigvaldi átti góðan leik fyrir Elverum og skoraði fimm mörk og var næstmarkahæstur, en hann er fyrirliði liðsins.
Everum er í þriðja sæti norsku deildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki og er liðið einnig í Meistaradeild Evrópu, þar sem liðið hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum.