Framsigur eftir æsilegar lokamínútur

Þorgrímur Smári Ólafsson skýtur að marki KA í dag.
Þorgrímur Smári Ólafsson skýtur að marki KA í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Fram vann 21:20-sigur á KA í æsispennandi leik í Olísdeild karla í handbolta á Akureyri í kvöld. Fram skoraði þrjú síðustu mörkin í lokin og tryggði sér sigur. 

Dagur Gautason kom KA í 20:18 þegar skammt var eftir, en Þorgrímur Smári Ólafsson skoraði tvö og Valdimar Sigurðsson eitt fyrir Fram á lokakaflanum á meðan vörn Framara hélt vel. 

Þorgrímur Smári fór á kostum hjá Fram og skoraði ellefu mörk. Arnar Snær Magnússon skoraði fjögur. Jón Heiðar Sigurðsson skoraði sex fyrir KA. 

Liðin eru áfram í níunda og tíunda sæti. Fram er í níunda með 14 stig og KA í tíunda með ellefu stig, fimm stigum fyrir ofan fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert