Elvar valinn í landsliðið

Guðmundur Þórður Guðmundsson.
Guðmundur Þórður Guðmundsson. AFP

Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, hefur valið átján leikmenn til að leikina þrjá í undankeppni EM í lok apríl og byrjun maí. 

Í hópnum eru fimm leikmenn sem ekki voru í landsliðinu í lokakeppni HM. Eru það Daníel Þór Ingason, Gunnar Steinn Jónsson, Teitur Örn Einarsson, Sveinn Jóhannsson og Elvar Ásgeirsson en sá síðastnefndi er sá eini í hópnum sem ekki á A-landsleik að baki. 

Ísland mætir Ísrael í Tel Aviv þriðjudaginn 27. apríl, því næst Litháen í Vilnus fimmtudaginn 29. apríl og Ísrael á Ásvöllum sunnudaginn 2. maí nk.

Ísland er eftir þrjá leiki í 2. sæti riðilsins en stendur þó betur en Portúgal sem er í 1. sæti riðilsins vegna betri innbyrðis stöðu milli liðanna. Tvö efstu liðin fara beint á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu sem fram fer í janúar á næsta ári.

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (38/1)

Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG (22/1)


Vinstra horn:

Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (79/219)

Oddur Gretarsson, Balingen-Weistetten (26/36)


Vinstri skytta:

Aron Pálmarsson, Barcelona (149/579)

Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH (31/9)

Ólafur Guðmundsson, IFK Kristianstad (131/258)


Leikstjórnendur:

Elvar Ásgeirsson, Nancy (0/0)

Elvar Örn Jónsson, Skjern (43/111)

Gunnar Steinn Jónsson, Göppingen (42/36)


Hægri skytta:

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (53/139)

Teitur Einarsson, IFK Kristianstad (18/18)

Viggó Kristjánsson, Stuttgart (18/44)


Hægra horn:

Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HCC (120/341)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce (36/73)


Línumenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (60/75)

Sveinn Jóhannsson, SønderjyskE Håndbold (9/15)

Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (50/23)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert