Naumt tap Hauka í Rúmeníu

Darri Aronsson var markahæstur hjá Haukum.
Darri Aronsson var markahæstur hjá Haukum. mbl.is/Óttar Geirsson

Haukar þurftu að sætta sig við 26:28-tap á útivelli gegn Foscani í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópubikars karla í handbolta í dag. Liðin mætast aftur á Ásvöllum um næstu helgi.

Staðan í hálfleik var 16:14, rúmenska liðinu í vil, og skoruðu liðin jafn mörg mörk í seinni hálfleik. Var staðan 26:26 þegar skammt var eftir en rúmenska liðið skoraði tvö síðustu mörkin.

Haukar byrjuðu ágætlega og komust í 3:1 og 8:5. Heimamenn jöfnuðu í 13:13 og komust í 15:13 í kjölfarið og tókst Haukum ekki að jafna eftir það.

Darri Aronsson var markahæstur í Haukaliðinu með sjö mörk, Brynjólfur Snær Brynjólfsson gerði sex og þeir Ólafur Ægir Ólafsson og Jón Karl Einarsson fjögur hvor.

Hauk­ar unnu Strovolou í tveim­ur leikj­um á Kýp­ur með ell­efu og tólf marka mun í síðustu umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert