Segir Aron þegar búinn að megra sig

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Egill Einarsson, einkaþjálfari Arons Pálmarssonar, landsliðsfyrirliða í handknattleik, segir Aron þegar vera búinn að létta sig fyrir næsta tímabil, þar sem hann mun snúa aftur til Íslands og leika fyrir uppeldisfélag sitt, FH.

Egill lagði þar út af ummælum Guðjóns Guðmundssonar, Gaupa, í Fyrsta sætinu, íþróttahlaðvarpi mbl.is og Morgunblaðsins.

„Þegar þú byrj­ar að eld­ast þá þarftu að hugsa um kíló­in þín. Þetta er maður sem er 102, 103 kg og mín skoðun er sú að hann þarf að vera sjö til átta kíló­um létt­ari til þess að plumma sig vel með landsliðinu og hérna heima.

Nái hann því þá á hann að minnsta kosti tvö til þrjú góð ár eft­ir með landsliðinu en hann þarf að fara í megr­un,“ sagði Gaupi meðal ann­ars.

Á Twitteraðgangi sínum skrifaði Egill að Aron væri þegar búinn að létta sig um sjö og hálft kíló.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert