Látið Ronaldo í friði

Cristiano Ronaldo hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu.
Cristiano Ronaldo hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu. AFP/Fabrice Coffrini

Fernando Santos, þjálfari potrúgalska landsliðsins í knattspyrnu, bað fjölmiðla um að láta fyrirliða liðsins Cristiano Ronaldo i friði á blaðamannafundi liðsins í dag.

Portúgal undirbýr sig nú fyrir leik gegn Marokkó í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar en leikurinn fer fram í Doha á morgun.

Ronaldo hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu, fyrst eftir afar umdeilt viðtal sem hann fór í hjá fjölmiðlamanninum Piers Morgan á dögunum og svo eftir að Santos tók þá ákvörðun að bekkja sóknarmanninn fyrir leikinn gegn Sviss í 16-liða úrslitum keppninnar.

„Það er kominn tími til þess að fólk láti Ronaldo í friði,“ sagði Santos þegar hann var spurður út í málefni Portúgalans í dag.

„Hann hefur aldrei minnst einu orði á það að hann vilji yfirgefa herbúðir liðsins og Katar.

Það er kominn tími til þess að hætta þessum eilífu nornaveiðum,“ bætti Santos við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert