Þriðji leikur Hauka og Vals í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í körfubolta fer fram á Ásvöllum kl. 19:15 í kvöld. Staðan í einvíginu er 1:1 og hafa liðin unnið sitt hvorn heimaleikinn til þessa.
Haukar komust í 1:0 með sannfærandi 85:68-sigri á heimavelli en Valskonur svöruðu með 80:76-sigri á Hlíðarenda. Liðið sem vinnur í kvöld er því í kjörstöðu og þarf aðeins einn sigur til viðbótar til að verða Íslandsmeistari.
Í fjórum viðurreignum liðanna í deildinni unnu Haukar þrjá leiki og Valur einn leik.