Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri tapaði fyrir Kýpur, 60:42, í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Austurríki. Ísland hefur nú unnið einn leik en tapað þremur á mótinu.
Birna Velgerður Benónýsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 15 stig. Fjórði og síðasti leikur íslenska liðsins í riðlakeppninni er gegn Finnlandi á morgun. Að honum loknum kemur í ljós hvaða sæti íslenska liðið spilar um á mótinu.