Haukur tryggði ótrúlegan sigur á toppliðinu

Haukur Helgi Pálsson var hetja Nanterre.
Haukur Helgi Pálsson var hetja Nanterre. Ljósmynd/FIBA

Haukur Helgi Pálsson og samherjar hans hjá franska körfuboltaliðinu Nanterre unnu glæsilegan 79:78-sigur á toppliði Lyon-Villeurbanne í efstu deild Frakklands í dag. Haukur skoraði tvö síðustu stig leiksins af vítalínunni í blálokin. 

Lyon-Villeurbanne byrjaði mikið mun betur og var staðan í hálfleik 49:37. Nanterre minnkaði hins vegar muninn hægt og rólega í síðari hálfleik og tókst að jafna undir lokin. Staðan var svo 78:77, Lyon-Villeurbanne í vil, þegar Nanterre hélt í sína síðustu sókn. 

Í henni náði Haukur í tvö vítaskot sem hann nýtti, undir mikilli pressu, og tryggði sínum mönnum sigur. Haukur skoraði níu stig, tók tíu fráköst og gaf eina stoðsendingu. Nanterre fór upp í þriðja sætið með sigrinum og munar nú sex stigum á liðunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert