Tvenna Giannis dugði ekki gegn Bandaríkjunum

Kemba Walker lék afar vel.
Kemba Walker lék afar vel. AFP

Bandaríkin eru nánast búin að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum á HM karla í körfubolta eftir 69:53-sigur á Grikklandi í dag. Bandaríska liðið spilaði stórglæsilegan varnarleik nánast allan leikinn. 

Giannis Antetokounmpo, stórstjarnan í liði Grikkja, reyndi hvað hann gat til að koma gríska liðinu aftur inn í leikinn, en það dugði skammt. Hann skoraði 15 stig og tók 13 fráköst. 

Kemba Walker var stigahæstur í bandaríska liðinu með 15 stig og Donovan Mitchell gerði 10 stig. Bandaríkin gulltryggja sæti sitt með sigri á Brasilíu á mánudag, en Grikkland er nánast úr leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert