Öllum körfubolta- og handboltaleikjum aflýst

mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleikssamband Íslands og Handknattleikssamband Íslands hafa bæði tilkynnt að ákveðið hafi verið að fresta öllum leikjum kvöldsins á Íslandsmótunum í þeirra greinum vegna slæmrar veðurspár.

Á dagskrá var einn leikur í 1. deild kvenna í körfubolta og leikir í 1. deild karla og kvenna í handbolta ásamt leikjum í yngri flokkum og í tilkynningum sambandanna segir að unnið verði með félögunum í að finna nýja leikdaga sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert