Ekki bara einn besti körfuboltamaður allra tíma

Kobe og Gianna Bryant eru syrgð um allan heim.
Kobe og Gianna Bryant eru syrgð um allan heim. AFP

Kobe Bryant hefur alla tíð verið einn af uppáhaldsíþróttamönnum mínum. Ég byrjaði ungur að halda með Los Angeles Lakers og fylgdist með þegar Kobe og Shaq voru óstöðvandi tvíeyki.

Ég þóttist vera Kobe þegar ég lék mér á körfuboltavellinum fyrir utan Fossvogsskóla á æskuárunum. Þegar ég kom heim skoraði ég þriggja stiga körfur með Kobe í NBA-tölvuleiknum mínum í PlayStation.

Ég ætlaði ekki að trúa því þegar fréttir fóru að berast af andláti hans. Þetta hlaut að vera eitthvert sjúkt grín. Kobe getur ekki verið dáinn. Ekki möguleiki. Hægt og rólega áttaði ég mig hins vegar á að þetta var ekkert grín. Kobe var allur.

Bakvörðinn í heild sinni er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert