Kanadískur framherji í Hauka

Shane Osayande leikur með Haukum á komandi leiktíð.
Shane Osayande leikur með Haukum á komandi leiktíð. Ljósmynd/Haukar

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gengið frá samningi við kanadíska framherjann Shane Osayande og mun hann leika með liðinu á komandi leiktíð. 

Osayande er 27 ára gamall og sléttir tveir metrar á hæð. Hefur hann leikið í B-deild Spánar síðustu ár og þar á undan í heimalandinu og Kólumbíu. 

Kólumbíumaðurinn Hansel Atencia mun einnig leika með Haukum á næsta tímabili en hann kemur til félagsins frá Þór Akureyri þar sem hann lék á síðustu leiktíð og skoraði 18 stig, tók þrjú frá­köst og gaf sex stoðsend­ing­ar að meðaltali í leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert