Skoruðu 116 stig í Hafnarfirði

Ragnar Nathanaelsson í baráttunni í Ólafssal í kvöld.
Ragnar Nathanaelsson í baráttunni í Ólafssal í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Larry Thomas átti stórleik fyrir Þór frá Þorlákshöfn þegar liðið heimsótti Hauka í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, í Ólafssal að Ásvöllum í kvöld.

Leiknum lauk með 116:100-sigri Þórsara en Thomas skoraði 36 stig og tók sjö fráköst.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Þórsarar leiddu með fimm stigum í hálfleik, 62:57.

Þórsarar skoruðu 34 stig í þriðja leikhluta gegn 24 stigum Hauka og Hafnfirðingum tókst ekki að snúa leiknum sér í vil í fjórða leikhluta.

Styrmir Snær Þrastarson fór mikinn í liði Þórsara og skoraði 32 stig og Callum Lawson skoraði 20 stig.

Hjá Haukum var Hansel Atencia stigahæstur með 19 stig og Breki Gylfason skoraði 15 stig.

Þórsarar eru í öðru sæti deildarinnar með 18 stig en Haukar eru í slæmum málum í neðsta sætinu með 4 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert