Jón Axel drjúgur en klikkaði í lokin

Jón Axel Guðmundsson átti fínan leik.
Jón Axel Guðmundsson átti fínan leik. Ljósmynd/FIBA

Jón Axel Guðmundsson átti góðan leik fyrir Bologna er liðið mátti þola 80:81-tap fyrir Reggiana í A-deild Ítalíu í körfubolta í kvöld.

Jón Axel skoraði átta stig, tók tíu fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 23 mínútum. Jón Axel var hinsvegar skúrkurinn í lok leiks þar sem hann klikkaði á tveimur vítaskotum undir lokin og síðasta skoti leiksins, þegar hann gat tryggt Bologna sigurinn.

Leikurinn var sá fyrsti í deildinni hjá Bologna á leiktíðinni en Jón Axel kom til Bologna frá Fraport í Þýskalandi fyrir þetta tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert