Keflvíkingar mæta í Frostaskjólið

Hörður Axel Vilhjálmsson lék ekki með landsliðinu á dögunum þar …
Hörður Axel Vilhjálmsson lék ekki með landsliðinu á dögunum þar sem hann hefur verið tæpur vegna meiðsla og spurning hvort hann spili með Keflavík í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjórir leikir eru á dagskrá í Subway deild karla í körfuknattleik í kvöld eða efstu deild Íslandsmótsins. 

Klukkan 18:15 taka Njarðvíkingar á móti Vestfirðingum í Njarðvík en heimamenn hafa þegar auglýst að landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson sé orðinn leikfær og verði með í leiknum. 

Tindastóll og ÍR eigast við á Sauðárkróki klukkan 19:15. 

Keflvíkingar mæta í Frostaskjólið og leika gegn KR í DHL-höllinni klukkan 20:15 og á sama tíma taka Valsmenn á móti Íslandsmeisturunum frá Þorlákshöfn í Origo-höllinni á Hlíðarenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert