Ekki meira með á tímabilinu

Dagur Kár Jónsson í leik með Stjörnunni gegn Val í …
Dagur Kár Jónsson í leik með Stjörnunni gegn Val í síðasta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksmaðurinn Dagur Kár Jónsson leikur ekki meira með Stjörnunni á yfirstandandi tímabili eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð á hné.

Karfan.is greinir frá því að Dagur hafi gengist undir aðgerðina fyrir tveimur vikum vegna meiðsla sem höfðu verið að plaga hann um skeið.

Reiknar Dagur með því að vera frá keppni í tvo til þrjá mánuði og þar með tekur hann ekki frekari þátt á tímabilinu.

Bakvörðurinn er áfram samningsbundinn Stjörnunni og verður að eigin sögn klár í slaginn fyrir næsta tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert